02.06.10 - 09:49
Magnús Már Einarsson
Fabio Cannavaro til Al Ahli (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro hefur óvænt gert tveggja ára samning við Al Ahli í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Þessi 36 ára gamli leikmaður kemur frítt til Al Ahli frá Juventus en félagið er núverandi meistari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
,,Ég er ánægður með að semja við Al Ahli,\" sagði Cannavaro í morgun.
,,Ég hef alltaf hugsað mér að flytja til Dubai þar sem ég elska lífið þar og núna hefur draumur minn ræst þar sem ég fer til Dubai og spila fyrir eitt af stærstu félögunum þar eins og Al Ahli.\"
Cannavaro á 132 landsleiki að baki með Ítölum en hann hjálpaði liðinu að verða heimsmeistari árið 2006 og sama ár var hann valinn besti knattspyrnumaður í heimi.

Heimild: Sporting Life