Fotbolti.net
02.06.10 - 18:15
Magnús Már Einarsson

Emanuel Pogatetz til Hannover (Staðfest)

Emanuel Pogatetz til Hannover (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið Hannover hefur samið við Emanuel Pogatez varnarmann Middlesbrough.
Pogatetz er búinn að gera þriggja ára samning við Hannover en hann kemur frítt til félagsins.

Pogatetz er 27 ára gamall en hann er fyrirliði austurríska landsliðsins.

Hannover hefur einnig fengið markvörðinn Markus Miller til liðs við sig frá Karlsruhe.

Það kemur lítið á óvart að Hannover sé að styrkja varnarleikinn hjá sér þar sem liðið fékk 67 mörk á sig í 34 leikjum á nýliðnu tímabili og var með lélegustu vörnina í þýsku Bundesligunni.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.