Fotbolti.net
02.06.10 - 16:36
Magnús Már Einarsson

Gísli Eyland Sveinsson í markið hjá Þór (Staðfest)

Gísli Eyland Sveinsson í markið hjá Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Þór hefur fengið undanþágu til að fá markvörðinn Gísla Eyland Sveinsson til liðs við sig þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður.
Björn Hákon Sveinsson og Logi Ásbjörnsson, markverðir Þórs, eru frá keppni vegna meiðsla og um tvær vikur eru í að sá fyrrnefndi verði klár í slaginn.

Þórsarar sóttu um undanþágu til að fá markvörð í síðustu viku en var hafnað. Þór áfrýjaði úrskurðinum og nú hefur félagið fengið leyfi til að fá Gísla til liðs við sig frá Tindastóli.

Guðmundur Ragnar Vignisson, úr 2.flokki, varði mark Þórs gegn Víkingi R. síðastliðinn fimmtudag en líklegt er að Gísli taki stöðu hans gegn Grindavík í VISA-bikarnum annað kvöld.

Gísli er afar reyndur markvörður en hann lagði skóna á hilluna í vetur eftir að hafa varið mark Tindastóls frá því árið 1999.

Auk þess að verja mark Tindastóls þá var Gísli vítaskytta hjá liðinu en hann skoraði alls þrettán mörk frá 2006 til 2009.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.