Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   mán 02. júní 2025 16:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Óboðleg staða á Akranesi - „Erum að velta stöðu allra fyrir okkur"
Níu stig, þrír sigrar, sjö töp og markatalan 12:24.
Níu stig, þrír sigrar, sjö töp og markatalan 12:24.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson hefur einungis stýrt liðinu til sigurs í einum leik í sumar, í hinum tveimur sigurleikjunum var hann í banni.
Jón Þór Hauksson hefur einungis stýrt liðinu til sigurs í einum leik í sumar, í hinum tveimur sigurleikjunum var hann í banni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eggert Herbertsson. 'Ég get sagt þér að mitt sæti er heitt'
Eggert Herbertsson. 'Ég get sagt þér að mitt sæti er heitt'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Núna eru menn aðeins að anda í kviðinn og velta þessu fyrir sér, hvernig getur þetta verið svona? '
'Núna eru menn aðeins að anda í kviðinn og velta þessu fyrir sér, hvernig getur þetta verið svona? '
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA situr á botni Bestu deildarinnar eftir tíu leiki, liðið steinlá gegn ÍBV í gær, 0-3. Úrslitin þykja mjög óvænt því ÍA sýndi sýna bestu frammistöðu á tímabilinu gegn Breiðabliki á fimmtudag þar sem vannst 1-4 útisigur.

Fótbolti.net ræddi við formann fótboltadeildar ÍA, Eggert Hjelm Herbertsson, um stöðu mála.

Lestu um leikinn: ÍA 0 -  3 ÍBV

„Þetta er mikið áhyggjuefni, frammistaðan er vel undir væntingum í mótinu og við þurfum að skoða hvað við getum bætt í því. Við höfum sýnt glefsur af góðum leik en líka átt þrjá ömurlega leiki; Val og KR úti og núna ÍBV heima. FH heima tapaðist 1-3, það var miklu skárra, jafn leikur. En í gær vorum við bara áhorfendur," segir Eggert.

Er eitthvað sem getur útskýrt af hverju leikur liðsins er svona kaflaskiptur?

„Það er það sem við erum að reyna hugsa og meta núna, hvað í .... er þetta? Er þetta stjórnin, er þetta þjálfarinn, eru þetta leikmennirnir? Eða samblanda af öllu? Við erum að reyna finna út úr því. Ég veit að spurningin þín er hvort sæti Jóns sé heitt. Ég get sagt þér að mitt sæti er heitt, við berum allir ábyrgð á þessu saman, öll í félaginu. Við þurfum að finna hvað við getum bætt. Þetta er augljóslega óboðlegt."

Ég spyr þá bara beint út, hvernig er staða Jóns Þórs? Eruð þið eitthvað að velta henni fyrir ykkur?

„Við erum að velta stöðu allra fyrir okkur núna; leikmanna, þjálfara, stjórnarmanna og starfsmanna. Erum að reyna komast að því hvað sé að hjá okkur núna, því þetta gengur ekki svona. Við spyrjum okkur að því á hverjum degi hvernig við getum bætt félagið, ef við erum sannfærð um að við þurfum að breyta því, þá gerum við það ef við erum sannfærð um að það sé rétt. Það þýðir ekki að breyta til þess að breyta eins og stundum er gert."

„Ef við ætlum að fá inn leikmann þá er ljóst að einhver dettur út, bætir það liðið? Það er eins með alla."


Er eitthvað tengt félagaskiptaglugganum, einhver eftirsjá þar?

„Nei, í sjálfu sér ekki. Við reyndum að bæta hópinn enn meira, en það var bara erfitt, reyndum við fullt af leikmönnum, hugmyndin var að styrkja hópinn með 1-2 leikmönnum, en það gekk ekki eftir."

„Við treystum alveg þessum hópi sem við fórum með inn í hópið, vorum og erum sannfærð um að við séum með gott lið þó að það sjáist ekki alltaf."


Þið lánuðuð nokkra leikmenn í Lengjudeildina, leikmenn sem voru í hlutverki í fyrra, en þó oftast á bekknum. Minnkaði breiddin of mikið við það?

„Það má alveg velta því fyrir sér hvort að breiddin hafi minnkað of mikið, en svo horfir maður í hversu margar mínútur þeir hefðu fengið hjá okkur, er betra fyrir þá að vera í stóru hlutverki og spila alla leiki, sumir að blómstra. Gerir þetta þá að betri leikmönnum? Ég held það. Við vorum með fjóra U17 landsliðsmenn sem við ætluðum að koma inn í hópinn til að fá breiddina, en það hafa verið meiðsli og svona hjá þeim, þeir hafa ekki alveg tekið það pláss sem við vonuðumst eftir."

„Við missum Hinrik (Harðarson) en tökum inn Ómar og Gísla Laxdal. Ómar sýndi á móti Breiðabliki að hann er frábær leikmaður. Við erum með gott lið, betra lið en í fyrra, ég er alveg sannfærður um það."


Er eitthvað súrt bragð í munninum eftir gærdaginn þar sem þið skorið mark sem fær ekki að telja í 0-0?

„Nei nei, það þýðir ekkert að spá í það. Áttu þeir ekki að fá víti líka? Mér fannst það allavega miðað við hvernig ég sá þetta á vellinum. Þetta var ekki rangstaða (í markinu), en var það stóra málið í leiknum? Ég held ekki. Við getum miklu meira litið í eigin barm heldur en að vera benda á einhverja aðra í þessu."

Eru einhverjir fundir fyrirhugaðir með öllum hópnum til að fara yfir málin?

„Núna eru menn aðeins að anda í kviðinn og velta þessu fyrir sér, hvernig getur þetta verið svona? Stórkostlegur leikur á móti Breiðabliki sem vinnur svo Víking í gær. Voru Breiðablik svona rosalega lélegir á móti okkur eða við svona rosalega góðir, eða var þetta samblanda af báðu? Maður skilur þetta ekki alveg, þetta er einhvern veginn ekki rökrétt. Við þurfum að hugsa málin, það eru 15 dagar í næsta leik og við höfum tíma í að hugsa aðeins. VIð munum ekki ana að neinu, stöndum saman og berjumst í gegnum þetta," segir Eggert.
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 6 2 2 19 - 11 +8 20
2.    Breiðablik 10 6 1 3 17 - 16 +1 19
3.    Valur 10 5 3 2 22 - 13 +9 18
4.    Vestri 10 5 1 4 12 - 7 +5 16
5.    Stjarnan 10 4 2 4 17 - 18 -1 14
6.    ÍBV 10 4 2 4 12 - 15 -3 14
7.    KR 10 3 4 3 28 - 23 +5 13
8.    Fram 10 4 0 6 16 - 17 -1 12
9.    KA 10 3 3 4 10 - 17 -7 12
10.    FH 10 3 2 5 15 - 14 +1 11
11.    Afturelding 10 3 2 5 8 - 13 -5 11
12.    ÍA 10 3 0 7 12 - 24 -12 9
Athugasemdir
banner
banner