Fotbolti.net
02.07.10 - 11:49
Magnús Már Einarsson

Yaya Toure til Manchester City (Staðfest)

Yaya Toure til Manchester City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur gengið frá kaupum á Yaya Toure en hann kemur til félagsins frá Barcelona.
Talið er að Manchester City borgi um 27,5 milljónir punda fyrir Toure sem skrifaði undir fimm ára samning við félagið.

Toure, sem er 28 ára, hefur leikið með Barcelona undanfarin þrjú ár en hjá Manchester City hittir hann fyrir bróðir sinn Kolo Toure.

,,Þetta eru frábær kaup fyrir Manhester City og ég er mjög ánægður með að Yaya hafi gengið til liðs við okkur, hann er mjög góður leikmaður,\" sagði Roberto Mancini stjóri Manchester City.

Mancini hefur verið duglegur á leikmannamarkaðinum í sumar en fyrr í vikunni kom David Silva til Manchester City frá Valencia auk þess sem varnarmaðurinn Jerome Boateng kom líka til félagsins á dögunum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.