02.07.10 - 15:11
Magnús Már Einarsson
Michael Laudrup tekur við Mallorca (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hinn danski Michael Laudrup hefur verið ráðinn þjálfari spænska félagsins Real Mallorca.
Á ferli sínum hefur Laudrup þjálfað Bröndby, Sparak Moskvu og síðan spænska félagið Getafe. Laudrup, sem er 46 ára, tekur við Mallorca af Gregorio Manzano sem hætti í lok tímabilsins.
Manzano náði flottum árangri með Mallorca í fyrra en liðið endaði í fimmta sæti í spænsku deildinni og rétt missti af Meistaradeildarsæti.
Laudrup á þó erfitt verkefni fyrir höndum því Mallorca skuldar 85 milljónir evra og því hefur Daninn enga peninga til leikmannakaupa.
Útlitið gæti þó batnað hjá Mallorca á næstunni því að fjárfestingahópur með fyrrum þjálfarann Llorenc Serra Ferrer fremstan í flokki keypti félagið á dögunum.

Heimild: Reuters