02.07.10 - 16:44
Hafliði Breiðfjörð
Yossi Benayoun til Chelsea (Staðfest)

Yossi Benayoun er orðinn leikmaður Chelsea.

Mynd: Getty Images

Ensku meistararnir í Chelsea staðfestu í dag á vef sínum að ísraelski landsliðsmaðurinn Yossi Benayoun sé genginn í raðir þeirra frá Liverpool.
Benayoun sem er þrítugur hefur þegar skrifað undir samning við Chelsea og mun hefja æfingar með liðinu á mánudag, 5. júlí.
,,Ég er mjög spenntur að koma til félags eins og Chelsea, þetta er stórt félag og það er draumur fyrir hvern einasta leikmann. Vonandi verðum við farsælir,\" sagði Benayoun eftir að hafa skrifað undir þriggja ára samning.
Hann var í þrjár leiktíðir hjá Liverpool en hann kom fyrst í ensku úrvalsdeildina árið 2005 er hann gekk til liðs við West Ham frá Racing Santander á Spáni.
Kaupverð á honum var ekki gefið upp á vef Chelsea í dag en hann mun líklega leika sinn fyrsta leik í treyju Chelsea gegn Crystal Palace í æfingaleik 17. júlí.

Heimild: Vefur Chelsea