Fotbolti.net
02.10.11 - 11:00
Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Þórðarson og Helgi Sigurðsson taka við Víkingi (Staðfest)

Ólafur Þórðarson og Helgi Sigurðsson taka við Víkingi (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Víkingar staðfestu á lokahófi sínu í gærkvöld að Ólafur Þórðarson sé tekinn við þjálfun liðsins af Bjarnólfi Lárussyni sem stýrði liðinu tímabundið út tímabilið.
Ólafur staðfesti fyrr um daginn að hann væri hættur þjálfun Fylkis sem hann hafði stýrt í þrjú ár.

Helgi Sigurðsson framherji Víking hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Ólafs með liðið en hann ætlar einnig að halda áfram að spila með Víkingum.

Ólafur gerði þriggja ára samning um að þjálfa lið Víkings sem leikur í 1. deildinni á næstu leiktíð eftir að hafa endað í botnsæti Pepsi-deildarinnar.

Ólafur er fjórði þjálfari Víkings á árinu. Leifur Garðarsson hafði stýrt liðinu fram á vor þegar hann var látinn fara.

Andri Marteinsson tók þá við liðinu en fékk að taka pokann sinn á miðju sumri og þá tók Bjarnólfur Lárusson við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.