Fotbolti.net
02.10.11 - 19:39
Alexander Freyr Tamimi

Steve McClaren hættur með Nottingham Forest (Staðfest)

Steve McClaren er hættur með Nottingham Forest.

Steve McClaren er hættur með Nottingham Forest.

Canon

Mynd: Getty Images

Samkvæmt Sky Sports er Steve McClaren búinn að segja starfi sínu sem knattspyrnustjóri Nottingham Forest lausu eftir minna en fjóra mánuði við stjórnvölinn.
Þessi fyrrum landsliðsþjálfari Englands tilkynnti þessa ákvörðun sína eftir að 3-1 tap liðsins gegn Birmingham í dag kom þeim í vonda stöðu í ensku Championship deildinni. Eftir að hafa rætt við eigendur félagsins samþykktu þeir að leyfa honum að fara.

McClaren hafði sagt það áður að hann myndi ekki yfirgefa félagið þó að hann væri ekki sáttur með vinnuskilyrði sín, en honum hefur greinilega snúist hguur.

McClaren á misjafnan feril að baki sem knattspyrnustjóri. Hann stóð sig vel hjá Middlesbrough og var ráðinn landsliðsþjálfari Englands, en var rekinn þaðan eftir að honum tókst ekki að komast á EM 2008.

Honum tókst að endurlífga ferilinn með því að stýra FC Twente til sigurs í hollensku úrvalsdeildinni en þaðan fór hann svo til Wolfsburg í Þýskalandi þar sem hann entist ekki út heilt tímabil.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.