Fotbolti.net
02.11.10 - 13:25
Magnús Már Einarsson

Eggert Rafn í Leikni R. (Staðfest)

Sigursteinn Gíslason þjálfari Leiknis og Eggert Rafn við undirritun samningsins.

Sigursteinn Gíslason þjálfari Leiknis og Eggert Rafn við undirritun samningsins.

Canon

Mynd: Leiknir R.

Leiknir R. hefur fengið varnarmanninn Eggert Rafn Einarsson til liðs við sig frá KR. Eggert er tvítugur en hann lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki KR árið 2007.
Síðan þá hefur hann alls leikið 21 leik í deild og bikar með KR en í sumar kom hann við sögu í fimm leikjum í Pepsi-deildinni.

Eggert getur leikið bæði sem bakvörður og miðvörður en hann hefur alls leikið 31 leik með yngri landsliðum Íslands.

,,Með komu Eggerts er komin góð mynd á lið Leiknis fyrir komandi leiktíð og ljóst að liðið ætti að mæta feykisterkt til leiks,\" segir á heimasíðu Leiknis.

,,Leiknismenn vænta mikils af pilt og vona að hann fái að blómstra í fegursta félagi landsins. Óskum við Eggert velkomin í okkar hóp og um leið Leiknismönnum til hamingju með nýja leikmanninn.\"

Heimild: Heimasíða Leiknis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.