Fotbolti.net
02.11.10 - 14:53
Magnús Már Einarsson

Gunnar Kristjánsson í FH (Staðfest)

Gunnar Kristjánsson í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

FH hefur fengið Gunnar Kristjánsson til liðs við sig frá KR en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Samningur Gunnars hjá KR rennur út um áramót og því var honum frjálst að semja við FH.

Gunnar þekkir til hjá FH því hann lék með liðinu á láni síðari hlutann á síðasta tímabili.

Þessi eldfljóti leikmaður skoraði tvö mörk í átta leikjum með FH í Pepsi-deildinni og nú er ljóst að hann verður áfram hjá félaginu.

Gunnar er uppalinn hjá KR en hann lék einnig með Víkingi R. sumarið 2007 og 2008.

Heimild: Fhingar.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.