02.11.10 - 20:56
Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Þór Gestsson tekur við Víði Garði (Staðfest)

Brynjar Þór Gestsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar Þór Gestsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Þór Gestsson hefur verið ráðinn þjálfari Víðis í Garði sem féll úr 2. deildinni í sumar. Þetta staðfesti Ólafur Róbertsson formaður knattspyrnudeildar félagsins við Fótbolta.net í kvöld.
Brynjar Þór tekur við starfinu af Njáli Eiðssyni sem stýrði liðinu síðustu umferðirnar í sumar eftir að Jakob Már Jónharðsson hafði hætt með liðið.
Brynjar er við nám í AUM háskólann í Bandaríkjunum en klárar þar og kemur heim um miðjan desember. Hann hefur því störf hjá Víði 4. janúar næstkomandi og hefur samið við félagið til þriggja ára.
Brynjar Þór Gestsson hafði þjálfað lið ÍH hluta af sumri, fyrst með Mikeael Nikulássyni og svo einn eftir að Mikael hætti með liðið og þar til Brynjar hélt utan til náms. Brynjar hefur áður þjálfað Álftanes, Huginn og ÍR.