02.11.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Goran Lukic tekur við þjálfun Grindavíkur (Staðfest)

Goran Lukic ásamt Guðnýju Gunnlaugsdóttur eftir undirskriftina.

Mynd: Grindavík

Grindavík hefur gengið frá ráðningu á þjálfara kvennaliðs félagsins en það er Goran Lukic sem tekur við liðinu.
Goran Lukic er 38 ára gamall og hefur verið hér á landi sem leikmaður síðan á síðustu öld.
Hann er með UEFA-B gráðu og á langan knattspyrnuferil að baki. Hann lék m.a. hér á landi með Grindavík, Stjörnunni, Víði Garði og Haukum.
Honum til aðstoðar verður Guðný Gunnlaugsdóttir.
Goran tekur við starfinu af Jóni Þór Brandssyni sem hætti með liðið eftir að það féll úr Pepsi-deildinni í haust og tók við KR.