Fotbolti.net
02.11.11 - 08:00
Mist Rúnarsdóttir

Ólafur Hlynur tekur við Fjarðarbyggð/Leikni (Staðfest)

Ólafur Hlynur Guðmarsson er nýr þjálfari Fjarðarbyggðar/Leiknis

Ólafur Hlynur Guðmarsson er nýr þjálfari Fjarðarbyggðar/Leiknis

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Kvennaboltinn
Ólafur Hlynur Guðmarsson er nýr þjálfari sameiginlegs liðs Fjarðarbyggðar/Leiknis. Hann tekur við liðinu af Páli Guðlaugssyni sem lét af störfum með liðið í haust.
Ólafur Hlynur lætur af störfum sem þjálfari danska liðsins Fredericia til þess að taka við Fjarðarbyggð/Leikni. Hann hefur undanfarin fjögur ár þjálfað í danska kvennaboltanum við góðan orðstír. Hann hefur þjálfað fjögur lið á þessum fjórum árum, í öllum deildum nema þeirri efstu. Á þessum tíma hefur honum tekst að stýra þremur liðanna upp um deild og hefur orðið bikarmeistari á Jótlandi í tvígang.

,,Það eru margar ástæður fyrir því að ég var tilbúinn aðkoma heim núna,\" sagði Ólafur Hlynur aðspurður um breytingarnar.

,,Þetta er voðalega krefjandi en spennandi verkefni hjá Fredericia og ég er búinn að ná ákveðnu jafnvægi í liðið. Ég skil við það sem 20. besta lið Danmerkur.\"

,,Ég setti mig svo í samband við þessi lið sem vantaði þjálfara heima. Eftir að hafa talað við Varða hjá Fjarðarbyggð/Leikni í fyrsta skiptið var ég orðinn mjög spenntur fyrir þeim hugmyndum sem þau hafa þarna fyrir austan.\"


En hvernig leggst nýja verkefnið í Ólaf?

,,Verkefnið leggst mjög vel í mig. Þetta er annað spennandi og krefjandi verkefni og ég hlakka til að fá að kynnast Austfjörðum. Það er flottur mannskapur í kringum liðið og flottar aðstæður hjá þeim.\"

,,Ég spilaði æfingaleik við Fjarðarbyggð/Leikni um Páskana hérna úti í Danmörku og sá svo leik með þeim í sumar á Íslandi. Ég þekki liðið því aðeins. Það eru flottir leikmenn þarna og liðið er mjög ungt en það á vel við mig að vinna með yngri leikmenn. Palli hefur unnið gott starf þarna svo nú þarf ég bara að bæta það.


Aðspurður um markmið liðsins á komandi tímabili svaraði Ólafur:

,,Markmið Fjarðarbyggðar/Leiknis er að eiga lið í efstu deid. Mitt markmið hlýtur að vera að vinna í þá áttina. Liðið er 21. besta á landinu og við ætlum að færa okkur ofar á þeim lista.\"

,,Annars fer tími í að kynnast leikmönnum og leikmenn þurfa að kynnast mér en þegar það er búið er meira hægt að setjast niður og setja sér markmið\",
sagði Ólafur Hlynur Guðmarsson, nýr þjálfari Fjarðarbyggðar/Leiknis en hann mun hefja störf hjá nýja liðinu sínu í janúar.
Stúlkurnar í Fjarðarbyggð/Leikni eru komnar með nýjan þjálfara

Stúlkurnar í Fjarðarbyggð/Leikni eru komnar með nýjan þjálfara

Canon

Mynd: www.kff.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.