Fotbolti.net
02.11.11 - 20:16
Magnús Már Einarsson

Árni Freyr Guðnason í Fylki (Staðfest)

Árni Freyr Guðnason í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Árni Freyr Guðnason hefur gengið til liðs við Fylki en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í kvöld. Þetta staðfesti Árni í samtali við Fótbolta.net.
Árni, sem leikur framarlega á miðjunni, var fyrirliði ÍR-inga í fyrstu deildinni í sumar en þessi 25 ára gamli leikmaður hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá liðinu undanfarin ár.

Eftir tímabilið lýsti Árni því yfir að hann hefði áhuga á að fara í Pepsi-deildina og í kjölfarið samþykkti ÍR tilboð frá bæði Fylki og ÍBV. Árni ákvað síðan á endanum að ganga í raðir Fylkis.

Í sumar skoraði Árni átta mörk í 16 leikjum með ÍR en hann hefur samtals skorað 50 mörk í 79 deildar og bikarleikjum með liðinu.

Árni, sem er uppalinn hjá FH, hefur einnig leikið með Reyni Sandgerði hér á landi en hann lék þar sumarið 2007.

Árni Freyr er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Fylkis síðan Ásmundur Arnarsson tók við liðinu en Björgólfur Takefusa kom til félagsins á láni í síðustu viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.