Fotbolti.net
02.12.11 - 18:28
Hafliði Breiðfjörð

Guðrún Arnardóttir í Breiðablik (Staðfest)

Guðrún ásamt Borghildi Sigurðardóttur formanni meistaraflokksráðs kvenna.

Guðrún ásamt Borghildi Sigurðardóttur formanni meistaraflokksráðs kvenna.

Canon

Mynd: Breiðablik

Kvennaboltinn
Breiðablik sendi frá sér fréttatilkynningu rétt í þessu þar sem það er staðfest að Guðrún Arnardóttir sé gengin til liðs við félagið frá Selfossi.
Guðrún er aðeins 16 ára gömul en á samt að baki 17 leiki með meistaraflokki Selfoss og hefur skorað í þeim tvö mörk.

Hún er varnarmaður sem hefur leikið 10 landsleiki með U17 ára landsliði kvenna og var með liðinu í undankeppni Evrópumótsins í Austurríki í október.

Hún er þriðji leikmaðurinn sem Breiðablik fær til liðs við sig í vetur, áður hafði Rakel Hönnudóttir komið frá Þór/KA og Björk Gunnarsdóttir úr Val.

Hlynur Eiríksson þjálfar liðið en hann hætti hjá Þór/KA í haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.