Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 02. desember 2022 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sigríður Emma framlengir við Grindavík
Emma við undirskrift
Emma við undirskrift
Mynd: Grindavík
Sigríður Emma Fanndal Jónsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Grindavík eða út tímabilið 2024.

Emma er 18 ára gömul og uppalin hjá félaginu. Hún hefur alls leikið 42 leiki með Grindavík á ferlinum og skorað eitt mark.

Emma er mjög fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum. Hún hefur leikið í fremstu víglínu hjá Grindavík en einnig í vörn og á miðju. Hún tók þátt í öllum 18 leikjum Grindavíkur á síðustu leiktíð í Lengjudeild kvenna þar sem liðið hafnaði í 7. sæti.

„Ég er virkilega ánægður með að Emma ætli að taka slaginn með okkur áfram. Hún spilaði lykilhlutverk hjá okkur á síðasta tímabili og stóð sig mjög vel. Við væntum mikils af Emmu á komandi tímabili,“ segir Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur.
Athugasemdir
banner
banner
banner