03.05.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Ana Rita Andrade Gomes í FH (Staðfest)

Ana Rita leikur með FH í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ana Rita leikur með FH í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ana Rita Andrade Gomes hefur gengið til liðs við kvennalið FH í knattspyrnu. Ana Rita er portúgölsk og á að baki fjölda landsleiki fyrir Portúgal.
Hún hefur leikið undanfarnar þrjár leiktíðir fyrir ÍR hér á landi. Með ÍR lék hún 45 leiki og skoraði 10 mörk. Ana Rita er á 34 aldursári og þar með elsti leikmaðurinn í Pepsí-deildinni á þessari leiktíð.
Fyrir hjá FH eru tvær löndur hennar Liliana Martins og Joana Pavao en sú síðarnefnda verður ekkert með liðinu í deildinni í sumar eftir að hafa slitið krossband í hné.
,,Það er mikill fengur fyrir hið unga og efnilega lið FH að fá til liðs við sig jafn reynslumikinn leikmann og Ana Rita er,\" segir í tilkynningu frá FH.
Ana Rita er eini leikmaðurinn í deildinni sem er heyrnarlaus.