03.05.10 - 13:42
Magnús Már Einarsson
Keflavík fær tvo leikmenn frá WBA (Staðfest)

Lateef Elford-Alliyu í leik með U17 ára landsliði Englendinga.

Mynd: Getty Images

Keflavík hefur fengið tvo unga leikmenn á láni frá WBA. Þorsteinn Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, staðfesti þetta í viðtali við Valtý Björn Valtýsson í útvarpsþættinum Mín Skoðun á X-inu í dag.
Leikmennirnir sem um ræðir heita Lateef Elford-Alliyu og Kayleden Brown en þeir eru báðir á átjánda aldursári.
Elford-Alliyu hefur verið hjá WBA síðan 2005 en í vetur lék hann með varaliði félagsins auk þess sem hann fór til Hereford á láni.
Elford-Alliyu á leiki að baki með U17 ára landsliði Englendinga en hann lék með liðinu á EM 2009.
Brown er örfvfættur miðjumaður en hann var í láni hjá Barrow í nokkrar vikur í vetur auk þess sem hann lék með varaliði WBA.
Brown, sem er í U19 ára landsliði Wales, var einnig í hópnum hjá WBA í leik gegn Reading í febrúar síðastliðnum.