Fotbolti.net
<b>Spá þjálfara í 2. deild:</b> 6. sæti

03.05.23

Spá þjálfara í 2. deild: 6. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Hetti/Hugin er spáð sjötta sæti deildarinnar í ár.
Spáin:
1.
2.
3.
4.
5.
6. Höttur/Huginn, 69 stig
7. Dalvík/Reynir, 63 stig
8. Völsungur, 53 stig
9. Víkingur Ó., 46 stig
10. KV, 42 stig
11. KF, 32 stig
12. KFG, 19 stig

Lokastaða í fyrra: Eftir að hafa farið með sigur af hólmi í 3. deild árið 2021 þá kom Höttur/Huginn á óvart í fyrra með því að lenda í fimmta sæti 2. deildar í fyrra. Fyrir tímabilið var liðinu spáð falli en liðið gerði mun betur en það þrátt fyrir nokkuð erfiða byrjun í deildinni.

Þjálfarinn: Brynjar Árnason var þjálfari ársins í 2. deild í fyrra en hann er bara 33 ára gamall. Hann ólst upp hjá Hetti og spilaði allan sinn feril fyrir austan. Hann byrjaði að þjálfa meistaraflokk Hattar/Hugins 2021 en hann hefur sýnt það að hann er ótrúlega efnilegur þjálfari.

Álit Ástríðunnar
Hlaðvarpsþátturinn Ástríðan er leiðandi í umfjöllun um 2. deild. Þáttarstjórnendur gefa sitt álit á liðunum fyrir mót.
Úr leik hjá Hetti/Hugin.
Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Úr leik hjá Hetti/Hugin.
Um Hött/Hugin segja þeir: Lið sem hefur á skömmum tíma farið úr því að vera nánast fallið niður í 4. deild yfir í að stefna á efsta sætið í 2. deild. Virkilega gott starf hefur verið unnið fyrir austan og sokkum troðið í hina ýmsu sérfræðinga. Höttur/Huginn hefur alla burði til að vera spútnikliðið í ár.

Styrkleikar: Hryggjarsúlan er mjög sterk og þeir hafa gert vel undanfarið ár í að sækja frábæra útlendinga. Ber þar helst að nefna Dani Ndi sem á A-landsleiki fyrir Kamerún og leiki í spænsku úrvalsdeildinni! Hann ætti að vera besti leikmaður 2. deildar ef allt er eðlilegt. Umgjörðin og þjálfunin er góð fyrir austan og mikið lagt í að gera vel.

Veikleikar: Eru þeir með næga breidd til að berjast á toppnum yfir heilt tímabil? Ná þeir að taka enn eitt skrefið fram á við? Hver á að skora mörkin fyrst Rafael Victor er farinn?

Lykilmenn: Dani Ndi, Matheus Gotler og Alberto Medel
Brynjar Árnason (hér til vinstri) var þjálfari ársins í 2. deild í fyrra.
Höttur/Huginn
Brynjar Árnason (hér til vinstri) var þjálfari ársins í 2. deild í fyrra.
Gaman að fylgjast með: Hinn efnilegi Eiður Orri Ragnarsson gæti sprungið út í sumar.

Komnir
Daniel Arnaud Ndi frá Spáni
Eiður Orri Ragnarsson frá Njarðvík (á láni)
Hilmar Freyr Bjartþórsson frá KFA
Víðir Freyr Ívarsson frá HK (á láni)

Farnir
Halldór Bjarki Guðmundsson í Spyrni
Hjörvar Sigurgeirsson í Aftureldingu
Rafael Victor í Njarðvík

Þjálfarinn segir - Brynjar Árnason
„Sumarið leggst mjög vel í okkur, við erum með sama kjarnann og í fyrra en missum mikilvæga leikmenn í þeim Rafael, Hjörvari Sig og Halldóri Bjarka. Við erum hinsvegar mjög sáttir með hópinn eins og hann er í dag og erum spenntir að byrja."
Dani Ndi gekk í raðir Hattar/Hugins í vetur en það er spennandi leikmaður.
Getty Images
Dani Ndi gekk í raðir Hattar/Hugins í vetur en það er spennandi leikmaður.
Fyrstu þrír leikir Hattar/Hugins:
5. maí, Völsungur - Höttur/Huginn (PCC völlurinn Húsavík)
13. maí, Höttur/Huginn - Víkingur Ó. (Vilhjálmsvöllur)
20. maí, KFG - Höttur/Huginn (Samsungvöllurinn)
Hjörvar Sigurgeirsson (hér til hægri) fór í Aftureldingu.
Afturelding
Hjörvar Sigurgeirsson (hér til hægri) fór í Aftureldingu.
Hetti/Hugin er spáð sjötta sæti.
Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Hetti/Hugin er spáð sjötta sæti.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.