03.06.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Pablo Ibanez til WBA (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Browich Albion hefur samið við varnarmanninn Pablo Ibanez en hann kemur frítt til félagsins frá Atletico Madrid.
Ibanez hefur skrifað undir þriggja ára samning við WBA en samningurinn tekur gildi þegar hann losnar frá Atletico Madrid þann 1.júlí.
Ibanez, sem er 28 ára, lék einungis sjö leiki með Atletico á síðustu leiktíð en hann var ekki í náðinni hjá Quique Sanchez Flores þjálfara liðsins.
Roberto Di Matteo, stjóri WBA,hefur verið að styrkja leikmannahópinn fyrir átökin í úrvalsdeildinni á næsta tímabili en auk Ibanez hefur félagið keypt Steven Reid frá Blackburn og Gabriel Tamas frá Auxerre.

Heimild: BBC