Fotbolti.net
03.06.10 - 10:37
Hafliði Breiðfjörð

Avram Grant tekur við West Ham (Staðfest)

Avram Grant.

Avram Grant.

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur gengið frá ráðningu á Avram Grant sem nýjum knattspyrnustjóra liðsins en hann skrifaði undir fjögurra ára samning sem er háður því að hann fái atvinnuleyfi á Englandi.
Grant sem er 55 ára gamall Ísraeli tekur við starfinu af Gianfranco Zola sem var rekinn eftir að liðið endaði í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Hann hafði komið Chelsea í úrslit Meistaradeildarinnar árið 2008 og Portsmouth í úrslit enska FA bikarsins í ár.

,,Ég er stoltur og mér er heiður að verða stjóri West Ham. Þetta er spennandi áskorun og ég er tilbúinn að gera mitt besta,\" sagði Grant á vef félagsins.

Líklegt er að hann komi með sitt eigið starfsfólk svo Steve Clarke sem aðstoðaði Zola og vann áður með Grant hjá Chelsea er á förum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.