Fotbolti.net
03.06.10 - 14:49
Magnús Már Einarsson

Rafa Benitez farinn frá Liverpool (Staðfest)

Rafa Benitez farinn frá Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rafa Benitez hefur yfirgefið Liverpool eftir sex ára starf sem knattspyrnustjóri hjá félaginu. Þetta var tilkynnt á vefsíðu félagsins nú rétt í þessu.
Benitez tók við Liverpool árið 2004 og hjálpaði liðinu að vinna Meistaradeildina árið 2005 og enska bikarinn árið 2006.

Í fyrra gerði Benitez nýjan fimm ára samning við Liverpool en eftir lélegt gengi á nýliðnu tímabili hefur félagið ákveðið að fá nýjan knattspyrnustjóra.

Christian Purslow, framkvæmdastjóri Liverpool, og Kenny Daglish, sendiherra félagsins, munu nú hefja leit að nýjum knattspyrnustjóra.

Martin O\'Neill, Guus Hiddink og Roy Hodgson eru á meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við félagið.

,,Það er mjög leiðinlegt fyrir mig að tilkynna að ég er ekki lengur stjóri Liverpool FC. Ég vil þakka öllu starfsfólki og leikmönnum fyrir þeirra framlag,\" sagði Benitez.

,,Ég mun alltaf geyma í hjarta mínu þá góðu tíma sem ég átti hér, þann mikla og trygga stuðning sem stuðningsmennirnir sýndu á erfiðum tímum og ástina frá Liverpool.\"

,,Ég á engin orð til að þakka nægilega mikið fyrir þessi ár og ég er mjög stoltur að geta sagt að ég var stjóri ykkar. Þakka ykkur einu sinni enn fyrir og munið alltaf: Þú gengur aldrei einn.\"

Heimild: Heimasíða Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.