03.07.10 - 12:19
Ívan Guðjón Baldursson
Cha Du-Ri genginn til liðs við Celtic (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Cha Du-Ri, hægri bakvörður Suður-Kóreu, er búinn að skrifa undir samning við Celtic í Skotlandi.
Hægri bakvörðurinn skrifaði undir tveggja ára samning við skoska félagið en hann spilaði mjög vel á HM er Suður-Kórea komst upp úr riðlinum sínum en tapaði 2-1 fyrir Úrúgvæ í 16 liða úrslitum.

Í gær fékk Celtic einnig til liðs við sig Charlie Mulgrew frá Aberdeen og talið er líklegt að fleiri leikmenn eigi eftir að fylgja í kjölfarið áður en félagaskiptaglugginn lokar eftir tæpa tvo mánuði.
Cha Du-Ri lék með Freiburg í Þýskalandi nýliðið tímabil en samningur hans rann út í sumar og því kemur hann frítt til Celtic.
Cha spilaði þrjá af fjórum leikjum Suður-Kóreu á HM en missti einungis af 4-1 tapi gegn Argentínu. Samanlagt hefur hann leikið 50 leiki með landsliði sínu frá árinu 2001. Hingað til hefur hann aðeins leikið í Þýskalandi með Arminia Bielefeld, Eintracht Frankfurt, Mainz, Koblenz og nú síðast Freiburg.