03.10.11 - 14:56
Magnús Már Einarsson
Atli Már Rúnarsson tekur við Magna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Atli Már Rúnarsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Magna á Grenivík en hann mun stýra liðinu í þriðju deildinni næsta sumar.
Atli Már hætti hjá Dalvík/Reyni á dögunum eftir tveggja ára starf og hann hefur nú tekið aftur við Magna þar sem hann þjálfaði frá 2006-2008.
,,Það er gott að vera þarna. Um leið og ég hætti á Dalvík þá stefndi hugurinn þangað aftur. Stefnan er að sjálfsögðu sett beint upp,\" sagði Atli við Fótbolta.net í dag en hann býst við að Magnamenn komi sterkir til leiks næsta sumar.
,,Ibra Jagne og Daniel Badu verða áfram að öllum líkindum og svo mun ég reyna að styrkja þetta líka.\"
Hinn 39 ára gamli Atli Már hefur verið spilandi þjálfari undanfarin ár og hann ætlar að æfa með Magnamönnum og vera Hirti Heimissyni markverði félagsins til halds og trausts.