Fotbolti.net
03.11.11 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi

Stephen Keshi tekur við Nígeríu (Staðfest)

Nígeríumenn hafa fengið nýjan landsliðsþjálfara.

Nígeríumenn hafa fengið nýjan landsliðsþjálfara.

Canon

Mynd: Getty Images

Nígeríska knattspyrnusambandið hefur ráðið Stephen Keshi sem landsliðsþjálfara, einungis fimm dögum eftir að hafa rekið Samson Siasa í kjölfar þess að liðið komst ekki í Afríkukeppnina 2012.
Keshi var fyrirliði Nígeríu er liðið var Afríkumeistari 1994, en sambandið tilkynnti um ráðningu hans í gær.

,,Það var einróma samkþykkt að ráða Stephen Keshi sem nýjan landsliðsþjálfara,\" sagði Mike Umeh forseti knattspyrnusambands Nígeríu.

Þess má til gamans geta að Lars Lagerback, nýráðinn landsliðsþjálfari okkar Íslendinga, stýrði Nígeríu á Heimsmeistaramótinu 2010.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.