Fotbolti.net
03.12.11 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Martin O\'Neill tekinn við Sunderland (Staðfest)

Martin O\'Neill tekinn við Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Martin O\'Neill hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Sunderland en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.

O\'Neill tekur við Sunderland af Steve Bruce sem fékk að taka pokann sinn fyrr í vikunni.
,,Ég vona að ég geti hjálpað Sunderland að ná velgegni. Þess vegna kem ég hingað, það er metnaður minn,\" sagði O\'Neill í dag.

O\'Neill verður í stúkunni á morgun þegar Sunderland heimsækir Wolves en Eric Black stýrir liðinu í þeim leik.

Þessi 59 ára gamli stjóri tekur íðan formlega til starfa á mánudag en hann hefur verið í fríi frá fóbolta síðan hann hætti hjá Aston Villa í ágúst í fyrra.

Heimild: Heimasíða Sunderland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.