Fotbolti.net
04.05.10 - 19:11
Magnús Már Einarsson

Haukar fá leikmann á láni frá WBA (Staðfest)

Haukar fá leikmann á láni frá WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Haukar hafa fengið miðjumanninn Sam Mantom á láni frá West Bromwich Albion en þetta kom fram á stuðningsmannakvöldi félagsins í kvöld.
Mantom, sem er 18 ára, var í leikmannahópi WBA í fyrsta skipti þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Reading í enska bikarnum í febrúar.

Mantom hefur leikið með WBA frá því hann var tólf ára en árið 2008 var hann valinn í U17 ára landslið Englands.

Hann er ekki eini leikmaður WBA sem mun leika á Íslandi í sumar því fyrr í vikunni fengu Keflvíkingar þá Lateef Elford-Alliyu og Kayleden Brown á láni.

Mantom er kominn til landsins en hann mun leika æfingaleik með Haukum gegn Víði Garði annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.