04.06.10 - 06:00
Davíð Örn Atlason
Sinisa Mihajlovic tekur við Fiorentina (Staðfest)

Sinisa Mihajlovic til hægri í baráttunni við Adrian Mutu, þáverandi leikmann Chelsea. Mutu er nú leikmaður Fiorentina en hann verður í banni næstu mánuðina eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.

Mynd: Getty Images

Sinisa Mihajlovic verður næsti knattspyrnustjóri Fiorentina eftir að Cesare Prandelli hætti með liðið og ákvað að taka við ítalska landsliðinu eftir HM.
Mihajlovic, sem kemur frá Serbíu sagði upp hjá Catania í síðustu viku eftir að hafa haldið liðinu í efstu deild á Ítalíu.
,,Sinisa Mihajlovic verður tilkynntur opinberlega á morgun (í dag),\" sagði í tilkynningu frá Fiorentina.
Fiorentina komst alla leið í sextán liða úrslitin í Meistaradeild Evrópu á leiktíðinni en liðið endaði þó aðeins um miðja deild í Serie-A.

Heimild: Reuters