04.07.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Sidney Govou til Panathinaikos (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gríska félagið Panathinaikos hefur fengið framherjann Sidney Govou til liðs við sig frá Lyon.
Govou, sem er 31 árs, hefur skorað 49 mörk í 292 leikjum með Lyon frá árinu 1999 en hann mun núna leika á Grikklandi á næsta tímabili.

Govou mun samkvæmt fréttum frá Grikklandi fá 1,5 milljónir evra í árslaun en hjá Panathinaikos hittir hann landa sinn Djibril Cisse sem var markahæstur í grísku deildinni á síðasta tímabili.
Þá gæti þriðji Frakkinn einnig gengið til liðs við Panathinaikos á næstunni því orðrómur er um að William Gallas muni koma til félagsins í kjölfar þess að samningur hans við Arsenal rann út.

Heimild: AFP