04.07.10 - 12:37
Hafliði Breiðfjörð
David O\'Leary tekur við Al Ahly (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nú er búið að staðfesta að David O\'Leary fyrrverandi stjóri Aston Villa og Leeds United hefur verið ráðinn til Al Ahly í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum.
O\'Leary sem er 52 ára gamall Íri hefur ekkert starfað við fótboltann í fjögur ár eða síðan hann var rekinn frá Aston Villa.
Hjá Al Ahly mun hann taka við knattspyrnustjórn eftir að hafa skrifað undir fjögurra ára samning við félagið.
Hann kemur til félagsins í kjölfar Fabio Cannavaro fyrirliða ítalska landsliðsins sem gekk til liðs við félagið í júní.
,,Við getum staðfest að David O\'Leary fyrrverandi stjóri í ensku úrvalsdeildinni með Meistaradeildarreynslu, hefur samþykkt að verða nýr þjálfari knattspyrnufélagsins Al Ahly,\" sagði Mark Bell íþróttastjóri félagsins.

Heimild: Sky