04.07.10 - 16:53
Magnús Már Einarsson
Valeri Bojinov til Parma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Parma hefur keypt búlgarska framherjann Valeri Bojinov frá Manchester City. Tommaso Ghirardi, forseti Parma, staðfesti þessi tíðindi fyrr í dag.
Bojinov var í láni hjá Parma á síðustu leiktíð og nú er ljóst að þessi 24 ára gamli leikmaður verður hjá félaginu næstu árin.
Samkvæmt fréttum frá Ítalíu mun Bojinov skrifa undir fimm ára samning við Parma.
Bojinov lék áður með Lecce og Fiorentina í Serie A en hann náði sér ekki á strik eftir að Manchester City keypti hann árið 2007.

Heimild: Sky