04.10.11 - 16:08
Elvar Geir Magnússon
Willum Þór Þórsson hættur með Keflavík (Staðfest)

Keflavík ákvað að framlengja ekki við Willum.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Stjórn Knattspyrnudeildar Keflavíkur hefur ákveðið að framlengja ekki samning sinn við Willum Þór Þórsson, þjálfara meistaraflokks karla. Frá þessu er greint á heimasíðu Keflavíkur.
Þorsteinn Magnússon framkvæmdastjóri Keflavíkur sagði við Fótbolta.net að félagið muni leita innan félagsins að eftirmanni Willums.
Zoran Daníel Lubicic þjálfari 2. flokks félagsins hefur verið orðaður við starfið en Þorsteinn vildi hvorki játa því né neita að haft verði samband við hann um að taka við liðinu.
Willum er gríðarlega farsæll þjálfari og hefur unnið allt sem hægt er að vinna hér á landi. Hann hefur unnið allar deildarkeppnir, frá efstu niður í neðstu, bikarinn, mót á undirbúningstímabilum og að sjálfsögðu Íslandsmeistaratitilinn.
Hann hefur stýrt Keflavík síðustu tvö tímabil. Í fyrra hafnaði liðið í sjötta sæti en í ár í því áttunda en það var í fallhættu fyrir lokaumferð.