Fotbolti.net
04.11.11 - 19:15
Magnús Már Einarsson

Ibra Jagne í Þór (Staðfest) - Rajkovic framlengir

Ibra Jagne í leik með Þór.

Ibra Jagne í leik með Þór.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Þór hefur fengið framherjann Ibra Jagne til liðs við sig frá Magna Grenivík en hann skrifaði undir samning við félagið í kvöld.
Ibra, sem er 26 ára, þekkir vel til hjá Þór því hann lék með liðinu frá 2004-2009 að undanskildu árinu 2007 þegar hann var hjá nágrönnunum í KA.

Um mitt sumar fór Ibra til Magna Grenivík þar sem hann hefur leikið undanfarin ár.

Á síðasta tímabili skoraði Ibra níu mörk í sextán leikjum í þriðju deildinni en hann var einnig aðstoðarþjálfari hjá Magna.

Ibra var ekki eini maðurinn með pennann á loftinu í félagsheimili Þórs í kvöld því markvörðurinn Srdjan Rajkovic krotaði einnig undir nýjan samning.

Rajkovic kom til Þórs frá Fjarðabyggð fyrir ári síðan en hann spilaði tuttugu leiki í Pepsi-deildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.