Fotbolti.net
04.11.11 - 20:17
Hafliði Breiðfjörð

Jamie McCunnie til ÍR (Staðfest)

Semur til þriggja ára og verður spilandi aðstoðarþjálfari og aðalþjálfari í afreksakademíu

Jamie McCunnie í leik með Grindavík í sumar.

Jamie McCunnie í leik með Grindavík í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Skotinn Jamie McCunnie er genginn til liðs við ÍR frá Grindavík og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Hann er 28 ára gamall og getur spilað bæði sem miðvörður eða miðjumaður.
Hjá ÍR mun hann verða spilandi aðstoðarþjálfari auk þess sem hann verður aðalþjálfari í nýrri afreksakademíu knattspyrnudeildar félagsins.

Hjá ÍR hittir McCunnie fyrir Andra Marteinsson sem er nýráðinn þjálfari liðsins en þeir voru saman hjá Haukum í Pepsi-deildinni fyrir tveimur árum.

Andri sem þá þjálfaði Hauka fékk McCunnie þá til félagsins frá East Fife í Skotlandi á miðju tímabili.

Að lokinni síðustu leiktíð gekk Skotinn svo til liðs við Grindavík þar sem hann lék í sumar. Hann lék 23 leiki í deild og bikar með Grindavík og skoraði í þeim eitt mark.

Á árunum 2001-2005 lék Jamie McCunnie 20 leiki með U21 árs landsliði Skota en hann á einnig að baki einn leik með B-landsliði þjóðarinnar.

Hann hefur leikið með Dundee United í heimalandi sínu þar sem hann lék með Arnari Gunnlaugssyni á tímabili, Ross County, Dunfermline, Hartlepool á Englandi, East Fife, Haukum og Grindavík.

Þetta eru önnur gleðitíðindin sem ÍR-ingar fá á sólarhring því í gærkvöld staðfesti Jón Gísli Ström kantmaður liðsins að hann ætlaði að vera áfram með þeim í 1. deildinni þrátt fyrir tilboð úr Pepsi-deildinni. Þá er félagið við það að ganga frá samningum við Vilhjálm Þór Vilhjálmsson sem var besti leikmaður Hamars í 2. deildinni í sumar og vonast til að klára samning við hann eftir helgi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.