Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. janúar 2021 16:30
Magnús Már Einarsson
Nokkur félög vilja fá Hamza á láni
Mynd: Getty Images
WBA hefur bæst í hópinn með félögum í ensku úrvalsdeildinni sem hafa áhuga á að fá Hamza Choudhury miðjumann Leicester á láni.

Hamza hefur einungis spilað tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni með Leicester.

Um síðustu helgi var hann ekki í 20 manna leikmannahópi liðsins gegn Leicester.

Brendan Rodgers, stjóri Leicester, er tilbúinn að leyfa hinum 23 ára gamla Hamza að fara á lán.

WBA vill fá Hamza til að hjálpa til í fallbaráttunni en Newcastle og fleiri félög hafa einnig áhuga.
Athugasemdir
banner
banner
banner