Fotbolti.net
05.06.10 - 18:08
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Thomas Hitzlsperger kominn til West Ham (Staðfest)

Thomas Hitzlsperger kominn til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham United á Englandi er búið að staðfesta að Thomas Hitzlsperger mun koma til féalgsins frá Lazio þessi knái miðjumaður er bara búinn að vera hjá ítalska félaginu frá því í janúar.
Hitzlsperger er fyrsti leikmaðurinn sem Avram Grant nýr stjóri West Ham fær til liðs við sig en hann kemur frítt til enska félagsins.

,,Thomas er toppklassa leikmaður sem ég veit að mun vera elskaður af stuðningsmönnunum,\" sagði David Sullivan formaður West Ham.

,,Við ætlum að fá til okkar blöndu af ungum leikmönnum fyrir framtíðina og góðum og reyndum leikmönnum sem geta bætt við styrkleika og dýpt í liðið.\"

Hitzlsperger spilaði í fimm ár á Englandi með Aston Villa frá 2000 til 2005 og fór svo til Stuttgart áður en hann fór til Lazio. Hann var ekki valinn í þýska hópinn fyrir HM og ákvað því að freista gæfunnar aftur á Englandi.


Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.