Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 05. júní 2020 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Teddi Ponza velur draumaliðið sitt
Mynd: Draumaliðsdeild Eyjabita
Theódór Ingi Pálmason, betur þekktur sem Teddi Ponza, er öflugur Fantasy spilari og hefur náð góðum árangri í draumaliðsleik ensku úrvalsdeildarinnar. Hann hefur nú valið draumaliðið sitt í Draumaliðsdeild Eyjabita. Pepsi Max-deild karla hefst eftir átta daga!

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

„Liðið mitt heitir Average White Ponza. Hef notað sama nafn í fantasy premier league með einstökum árangri," segir Teddi.

„Gunnar Nielsen byrjar í búrinu. Hann hefur mikið að sanna eftir síðasta tímabil og verður með sokkana á lofti on his revenge tour."

„Vörnin samanstendur af Heiðari Ægis, sem er sókndjarfur mjög og ógnar sífellt með hraða sínum og krafti. Leifur Andri og Hallur Flosa voru fyrstu menn á blað. Harðir í horn að taka og einstaklega huggulegir báðir tveir."

„Hilmar Árni er auto á miðjuna og Haxgrímur Mar er bargain á þessu verði. Hallvarður er dark horse en gárungarnir í Grafarvoginum segja mér að hann sé mögulega með vítapunktinn. Hef svo trú á að Jónatan Ingi eigi break out season og bæti fleiri mörkum og stollum við sinn leik. Gæti verið an absolute steal á 7,5 dúllur."

„Bjarni Gunn fær traustið og þarf að skila mörkum fyrir HK. Palli Ped og Gullsmiðurinn eiga svo alltaf að skila inn mörkum. Enduðu síðasta tímabil vel heitir og skila því standi inn í komandi tímabil,"
sagði Ponzan. Mynd af liðinu fylgir með fréttinni.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Sjá einnig:
Draumaliðsdeildin - Gunni Birgis velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Böddi löpp velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Egill Ploder velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Aron Elís velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Hjammi velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Atli Viðar velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Kristján Óli velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Andri Rúnar velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Emil Páls velur liðið sitt
Athugasemdir
banner
banner
banner