Portúgalski kantmaðurinn Rafael Leao vill fara frá AC Milan eftir vonbrigðatímabil hjá félaginu.
Leao er ekki ánægður með stjórnarhætti Massimiliano Allegri fráfarandi þjálfara sem spilaði leikmanninum, ásamt fleirum, úr stöðu. Allegri vildi spila sína útgáfu af 3-5-2 og var gagnrýndur fyrir að breyta ekki leikkerfinu þegar illa gekk, ekki ósvipað gagnrýninni sem Rúben Amorim fékk hjá Manchester United.
„Mér var spilað úr stöðu allt tímabilið og ég gat ekki haft þau áhrif sem ég vildi á úrslit leikja. Ég spilaði í gegnum meiðsli rúma 4 mánuði af tímabilinu og var orðinn gjörsamlega úrvinda þegar maí bar að garði," segir Leao sem er búinn að fara fram á sölu frá Milan.
„Ég vil takast á við nýja áskorun utan landsteinanna. Ég vil reyna fyrir mér í nýrri deild. Ég fylgist mikið með ensku úrvalsdeildinni og La Liga og ég væri mjög til í að spila í þeim deildum, ég held að hæfileikar mínir geti fengið að njóta sín betur þar."
Leao er 26 ára gamall og á tvö ár eftir af samningi við Milan. Talið er að félagið sé reiðubúið til að selja hann fyrir 50 til 60 milljónir evra.
Leao kom í heildina að 13 mörkum í 31 leik á tímabilinu en það eru liðin fjögur ár síðan hann vann deildina með Milan og var valinn sem besti leikmaður ítölsku deildarinnar.
Hann hefur í heildina komið að 145 mörkum með beinum hætti í 291 leik í treyju Milan. Hann á auk þess 5 mörk í 43 landsleikjum fyrir Portúgal og er í landsliðshópnum sem fer á HM.
30.05.2026 23:00
Leao vill fara frá Milan - Orðaður við Man Utd



