Fotbolti.net
05.07.10 - 09:53
Magnús Már Einarsson

Eric Gerets tekur við Marokkó (Staðfest)

Eric Gerets tekur við Marokkó (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Eric Gerets hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Marokkó en þetta var staðfest í morgun.
Gerets tekur við af Roger Lemerre sem var rekinn úr starfi á síðasta ári.

Gerets er sem stendur þjálfari hjá Al Hilal í Sádi-Arabíu en hann mun hætta þar í nóvember til að einbeita sér að Marokkó.

Á þjálfaraferli sínum hefur Gerets meðal annars stýrt PSV Eindhoven, Kaiserslautern, VfL Wolfsburg, Galatasaray og Marseille.

Sem leikmaður lék hann 86 landsleiki með Belgum og hjálpaði þeim meðal annars að komast í undanúrslit á HM 1986.

Heimild: Heimasíða Fifa

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.