Fotbolti.net
05.07.10 - 12:01
Magnús Már Einarsson

Joao Moutinho til Porto (Staðfest)

Joao Moutinho til Porto (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Porto hefur keypt miðjumanninn Joao Moutinho frá Sporting Lisabon á ellefu milljónir evra.

Þessi 23 ára gamli Portúgali hefur oft verið orðaður við önnur félög og Everton hafði meðal annars lengi áhuga á honum.
Moutinho var fyrirliði hjá Sporting Lisabon en hann hefur núna skrifað undir fimm ára samning við Porto.

Moutinho, sem var ekki í landsliðshópi Portúgala á HM, mun reyna að hjálpa Porto að endurheimta sæti í Meistaradeildinni en liðið endaði í þriðja sæti í portúgölsku deildinni á síðustu leiktíð og leikur því í Evrópudeildinni á næsta tímabili.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.