05.07.10 - 13:02
Magnús Már Einarsson
James Perch til Newcastle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Newcastle hefur gengið frá kaupum á James Perch leikmanni Nottingham Forest.
Perch er búinn að standast læknisskoðun og skrifa undir fjögurra ára samning við Newcastle.
Þessi 24 ára gamli leikmaður getur spilað á miðjunni sem og í öllum stöðum í vörninni.
Perch kom í gegnum unglingastarf Nottingham Forest en hann á yfir 200 leiki að baki með liðinu.
Perch er fyrsti leikmaðurinn sem Newcastle fær síðan liðið endurheimti sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni.

Heimild: BBC