Fotbolti.net
05.07.10 - 18:05
Hannes Daði Haraldsson

Kris Boyd til Middlesbrough (Staðfest)

Kris Boyd í leik með Rangers

Kris Boyd í leik með Rangers

Canon

Mynd: Getty Images

Markahæsti leikmaður skosku úrvalsdeildarinnar frá upphafi, Kris Boyd, skrifaði í dag undir samning við enska félagið Middlesbrough. Boyd er skæður sóknarmaður en hann hefur skorað 164 mörk á ellefu árum í skosku deildinni, fyrst með Kilmarnock og síðan Rangers.
Boyd var bendlaður við mörg ensk félög en valdi að lokum Middlesbrough. Hann kemur frítt til félagsins enda rann samningur hans við Ranger út í sumar.

Gordon Strachan, knattspyrnustjóri Middlesbrough segir að liðið verði að komast upp í úrvalsdeild á komandi tímabili.

,,Við verðum að komast upp í úrvalsdeildina í ár. Við þurfum leikmenn sem vilja fara í hvern leik til að sigra,\" sagði Strachan,

,,Championship deildin er þolraun ef þú hefur karaktera og mörk í liðinu þá áttu möguleika á að ná árángri.\"

Heimild: Heimasíða Middlesbrough

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.