Newcastle á eftir Scalvini - Barcelona snýr sér aftur að Díaz - Tottenham vill belgískan miðvörð
   lau 05. júlí 2025 22:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Leysir Mbappe af og fer á kostum - Ótrúleg dramatík
Arda Guler og Gonzalo Garcia
Arda Guler og Gonzalo Garcia
Mynd: EPA
Real Madrid 3 - 2 Borussia D.
1-0 Gonzalo Garcia ('10 )
2-0 Francisco Garcia ('20 )
3-0 Kylian Mbappe ('90 )
3-1 Maximilian Beier ('90 )
3-2 Serhou Guirassy ('90 , víti)
Rautt spjald: Dean Huijsen, Real Madrid ('90)

Real Madrid er komið áfram í undanúrslit á HM félagsliða eftir sigur á Dortmund í kvöld.

Hinn 21 árs gamli Gonzalo Garcia hefur verið óvænt hetja Real Madrid á mótinu en hann hefur verið að spila sem fremsti maður í fjarveru Kylian Mbappe sem hefur verið að kljást við veikindi.

Garcia kom Real Madird yfir snemma leiks en hann hefur komið að marki í öllum leikjunum á mótinu til þessa. Hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp eitt í fimm leikjum.

Mbappe kom inn á í fyrsta sinn á mótinu gegn Juventus í 16-liða úrslitum og kom svo inn á 67. mínútu í kvöld.

Það var síðan Fran Garcia sem innsiglaði sigur liðsins þegar hann kom boltanum í netið eftir sendingu frá Trent Alexander-Arnoldl sem hefur nú lagt upp mark í tveimur leikjum í röð.

Maximilian Beier minnkaði muninn í uppbótatíma en Mbappe innsiglaði sigurinn með marki stuttu síðar. Þessu var ekki alveg lokið þvíi Dortmund fékk vítaspyrnu og Dean Huijsen fékk að líita rauða spjaldið fyrir brot á Serhou Guirassy, framherjinn steig sjálfur á punktinn og skoraði. Þeir voru svo hársbreidd frá því að jafna metin í blálokin en Thibaut Courtois varði frábærlega.

Real Madrid mætir PSG í undanúrslitum.
Athugasemdir
banner