05.12.11 - 12:00
Magnús Már Einarsson
Ögmundur Ólafsson í Þrótt (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttarar hafa fengið markvörðinn Ögmund Ólafsson til liðs við sig frá HK en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í morgun.
,,Við bjóðum Ögmund velkominn í Þrótt og væntum mikils af hans kröftum um leið og við óskum honum góðs gengis,\" segir á heimasíðu Þróttar.
Ögmundur sem er uppalinn hjá Stjörnunni á að baki 80 leiki í Íslandsmóti og bikar.
Ögmundur hefur verið hjá HK undanfarin fjögur ár og aðalmarkvörður síðustu 3 ár en hann á 65 leiki að baki fyrir félagið.
Þessi 27 ára gamli leikmaður féll með HK í sumar en nú er ljóst að hann mun leika áfram í fyrstu deildinni næsta sumar.

Heimild: Heimasíða Þróttar