Fotbolti.net
05.12.11 - 13:49
Hafliði Breiðfjörð

Elva Friðjónsdóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Elva æfði með Stjörnunni síðasta vetur og hér má sjá hana í æfingaleik gegn Breiðablik.

Elva æfði með Stjörnunni síðasta vetur og hér má sjá hana í æfingaleik gegn Breiðablik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Kvennaboltinn
Elva Friðjónsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna frá Þór/KA og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Íslandsmeistarana.
Elva sem er systir Ingu Birnu Friðjónsdóttur leikmanns Stjörnunnar æfði með Stjörnunni síðasta vetur. Hún ætlaði svo að spila með Þór/KA í sumar en sleit krossband í hné fyrir tímabilið og var því ekkert með.

Hún er nú gengin til liðs við Stjörnunar og leikur með þeim næstu þrjú árin.

Elva er annar leikmaðurinn sem kemur til Stjörnunnar frá því tímabilinu lauk því áður kom Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir frá KR. Þá kom Sandra Sigurðardóttir markvörður aftur til liðsins í lok tímabilsins.

Elva sem er 21 árs gömul á að baki 54 leiki í deild og bikar með Tindastól og Þór/KA og hefur skorað í þeim 11 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.