Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 05. desember 2019 19:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lukaku: Heimskasta fyrirsögn sem ég hef séð
Mynd: Getty Images
Í morgun birti Corriere dello Sport á forsíðu sinni frétt með fyrisögninni 'Svartur Föstudagur'.

Sjá einnig:
Smalling: Forsíðan særandi - Ritstjórar verða að taka ábyrgð

Chris Smalling og Romelu Lukaku voru á myndinni en þeir mætast í leik annað kvöld þegar Inter og Roma. Chris Smalling gagnrýndi þessa forsíðu harðlega og Lukaku hefur einnig tjáð óhamingju sína.

„Í stað þess að einbeita sér að bardaga tveggja liða þá kemur corriere dello sport me heimskustu fyrirsögn sem ég hef séð á ferli mínum," skrifaði Luakku.

„Þið haldið rasísku orðræðunni áfram í stað þess að tala um fallega leikinn sem fer fram á San Siro milli tveggja frábærra félaga."

„Menntun er nauðsyn og þið hjá blaðinu þurfið að gera betur í ykkar hlutverki."

„Takk fyrri stuðninginn sem ég hef fengið og áfram Inter."



Athugasemdir
banner
banner