Fotbolti.net
06.05.10 - 14:04
Magnús Már Einarsson

Dan Stubbs í KA (Staðfest)

Dan Stubbs í KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Margate

KA hefur samið við enska miðjumanninn Dan Stubbs sem hefur verið til reynslu hjá félaginu að undanförnu.
Dan er 21 árs gamall og hefur leikið á Englandi alla sína tíð. Á síðasta tímabil, sem lauk í lok apríl, lék hann með Margate Football Club þar sem hann var valinn leikmaður ársins af stuðningsmönnum. Dan kom áður upp í gegnum unglingastarfið hjá Ebbsfleet United.

,,Fyrstu kynni mín af klúbbnum eru frábær, það er allt mjög fagmannlega gert og ég er ánægður með að vera hluti af þessu sem er í gangi hérna. Ég spila hraðan einnar til tveggja snertinga fótbolta og geri hlutina ekki of flókna. Ég vona að það sé það sem stuðningsmennirnir hérna vilji sjá,\" sagði Dan við heimasíðu KA.

Dean Martin, þjálfari KA, er Englendingur og hann sannfærði Dan um að koma til Íslands.

,,Dínó talaði við vin minn úti og spurði hvort það væru einhverjir leikmenn sem hefðu áhuga á að spila fótbolta í sumar, svo fékk ég símtal og tveimur dögum seinna er ég hér.\"

Verið er að vinna í að fá leikheimild fyrir Dan þannig að hann geti leikið með KA í fyrstu umferð fyrstu deildarinnar gegn Þrótti á sunnudag.

Heimild: Heimasíða KA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.