Tindastóll vann fimmta deildarsigurinn er liðið hafði betur gegn KV, 4-1, í 3. deild karla í dag.
Stólarnir hafa byrjað tímabilið af krafti og gera sterkt tilkall til þess að fara upp um deild í ár.
Gestirnir frá Sauðárkróki skoruðu þrjú mörk á rúmum tuttugu mínútum og náðu að innsigla frábæran 4-1 sigur. Tindastóll er á toppnum með 16 stig eftir sex leiki en KV í 5. sæti með 9 stig.
Sindri og Víðir unnu einnig 4-1 útisigra. Víðir vann KÁ þar sem Cristovao Martins gerði tvö mörk. Ibrahim Sorie Barrie skoraði einnig tvö mörk fyrir Sindra sem vann Árbæ.
Víðir er í 2. sæti með 13 stig og Sindri í 7. sæti með 7 stig á meðan KÁ er í 9. sæti með 6 stig og Árbær í næstneðsta sæti með 4 stig.
KF og Ýmir gerðu markalaust jafntefli á Ólafsfirði á meðan Höttur gerði 1-1 jafntefli við KH.
KH er í 4. sæti með 11 stig, Höttur í 8. sæti með 6 stig, Ýmir í 10. sæti með 5 stig og KF í neðsta sæti með aðeins 3 stig.
KV 1 - 4 Tindastóll
0-1 Matheus Bettio Gotler ('22 )
1-1 Tristan Alex Tryggvason ('61 )
1-2 David Bercedo ('69 )
1-3 Ariel Reinero ('90 )
1-4 Arnar Ólafsson ('90 )
KF 0 - 0 Ýmir
KÁ 1 - 4 Víðir
1-0 Dominic Lee Briggs ('32 , Own goal)
1-1 Kristófer Snær Jóhannsson ('55 )
1-2 Sveinn Andri Sigurpálsson ('56 )
1-3 Cristovao A. F. Da S. Martins ('67 )
1-4 Cristovao A. F. Da S. Martins ('90 )
Árbær 1 - 4 Sindri
0-1 Ibrahim Sorie Barrie ('3 )
0-2 Jóhann Frans Ólason ('15 )
1-2 Eyþór Ólafsson ('24 )
1-3 Abdul Bangura ('48 )
1-4 Ibrahim Sorie Barrie ('67 )
Höttur 1 - 1 KH
0-1 Birgir Óliver Árnason ('21 )
1-1 Dennis Nieblas Moreno ('38 )
3. deild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Tindastóll | 6 | 5 | 1 | 0 | 17 - 5 | +12 | 16 |
| 2. Reynir S. | 6 | 4 | 0 | 2 | 16 - 12 | +4 | 12 |
| 3. KH | 6 | 3 | 2 | 1 | 19 - 9 | +10 | 11 |
| 4. Víðir | 5 | 3 | 1 | 1 | 10 - 7 | +3 | 10 |
| 5. KV | 6 | 3 | 0 | 3 | 16 - 17 | -1 | 9 |
| 6. Augnablik | 6 | 2 | 2 | 2 | 15 - 14 | +1 | 8 |
| 7. Sindri | 6 | 2 | 1 | 3 | 8 - 15 | -7 | 7 |
| 8. Höttur | 6 | 1 | 3 | 2 | 6 - 7 | -1 | 6 |
| 9. KÁ | 5 | 2 | 0 | 3 | 11 - 13 | -2 | 6 |
| 10. Ýmir | 6 | 1 | 2 | 3 | 8 - 13 | -5 | 5 |
| 11. Árbær | 6 | 1 | 1 | 4 | 10 - 19 | -9 | 4 |
| 12. KF | 6 | 0 | 3 | 3 | 5 - 10 | -5 | 3 |

