Fotbolti.net
06.09.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Joseph Yobo til Fenerbahce (Staðfest)

Joseph Yobo er farinn frá Everton.

Joseph Yobo er farinn frá Everton.

Canon

Mynd: Getty Images

Joseph Yobo varnarmaður Everton hefur verið lánaður til Fenerbahce í Tyrklandi út tímabilið.
Nígeríumaðurinn sem er 31 árs gamall var þar á láni á síðustu leiktíð líka og vann deildina með þeim.

Fenerbahce vildi halda honum áfram og gengið var frá lánssamningi áður en félagaskiptaglugginn í Tyrklandi lokaði klukkan 21:00 í gær að íslenskum tíma.

Yobo var talinn ætla að ganga til liðs við Fenerbahce í sumar en valdi þá að vea áfram hjá Everton.

Yobo sem er með samning við Everton sem rennur út árið 2014 lék ekkert með liðinu á undirbúningstímabilinu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.